Fotbolti.net
27.07.19 - 10:02
Magnús Már Einarsson

Stefan Alexander Ljubicic í Grindavík (Staðfest)

Stefan Alexander Ljubicic.

Stefan Alexander Ljubicic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík hefur fengið sóknarmanninn Stefan Alexander Ljubicic í sínar raðir.
Stefan varð samningslaus í sumar eftir að hafa verið á mála hjá Brighton undanfarin ár þar sem hann spilaði með unglinga og varaliðinu.

Stefán lék í yngri flokkum Keflavíkur en þessi U21 árs landsliðsmaður Íslands hefur verið hjá Brighton síðan árið 2016.

Á síðasta tímabili var Stefán á láni hjá Eastbourne í ensku utandeildinni.

Fyrr í mánuðinum var Stefan á reynslu hjá Öster í Svíþjóð en hann hefur nú samið við Grindavík.

Grindvíkingar hafa verið í basli með að skora i sumar en þeir hafa skorað átta mörk í þrettán leikjum. Vörn liðsins hefur hins vegar verið sú öflugasta í deildinni.

Stefan gæti spilað sinn fyrsta leik með Grindavík á morgun þegar botnlið ÍBV kemur í heimsókn.

Stefan er mættur í Draumaliðsdeild Eyjabita!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.