27.07.19 - 13:30
Brynjar Ingi Erluson
Thomas Vermaelen til Japan (Staðfest)

Thomas Vermaelen var kynntur hjá Vissel Kobe í dag

Mynd: Twitter

Belgíski varnarmaðurinn Thomas Vermaelen samdi í dag við japanska félagið Vissel Kobe en hann kemur á frjálsri sölu frá Barcelona. Hann var kynntur fyrir æfingaleik sem liðin spiluðu í dag.
Vermaelen er 33 ára gamall en hann spilaði með hollenska liðinu Ajax áður en hann samdi við Arsenal árið 2009.
Hann stóð sig afar vel með Arsenal þar sem hann var lykilmaður en það varð til þess að spænska stórliði Barcelona keypti hann árið 2014.
Meiðsli settu strik í reikninginn á tíma hans hjá Barcelona en hann spilaði aðeins 51 leik og skoraði 1 mark á fimm árum sínum þar. Hann var þá á láni hjá Roma tímabilið 2016-2017.
Samningur hans hjá Barcelona rann út í sumar en hann var ekki lengi að finna sér nýtt félag.
Hann er kominn til Vissel Kobe í Japan en fetar þar í fótspor þeirra Andrés Iniesta og David Villa. Lukas Podolski er einnig á mála hjá félaginu.