27.07.23 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
David Silva leggur skóna á hilluna

David Silva.

Mynd: Getty Images

David Silva.

Mynd: Getty Images
David Silva hefur lagt skóna á hilluna eftir að hafa lent í alvarlegum hnémeiðslum.
„Í dag er sorglegur dagur fyrir mig," segir Silva.
„Í dag er sorglegur dagur fyrir mig," segir Silva.
Hinn 37 ára gamli Silva átti magnaðan feril þar sem hann er líklega þekktastur fyrir tíma sinn hjá Manchester City. Hann var í áratug hjá félaginu, spilaði meira en 400 leiki og vann fjóra Englandsmeistaratitla.
Silva gekk í raðir Real Sociedad árið 2020 og var á leið inn í sitt fjórða tímabil með félaginu eftir sumarið.
En hann sleit krossband á undirbúningstímabilinu og hefur því ákveðið að hætta.
Silva spilaði 125 A-landsleiki fyrir Spánverja og var hluti af mögnuðum liðum sem unnu EM 2008 og 2012, og HM 2010.

Muchas gracias…fútbol pic.twitter.com/HoB6TPojAd
— David Silva (@21LVA) July 27, 2023