Fotbolti.net
27.08.17 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Björn Daníel lánaður til Velje (Staðfest)

Björn Daníel lánaður til Velje (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Björn Daníel Sverrisson hefur verið lánaður frá AGF í Árósum til Velje. Lánssamningurinn gildir út þetta ár.

Það eru fimm dagar eftir af félagsskiptaglugganum og á heimasíðu Velja kemur fram að félagið sé búið að næla í sterkan og reynslumikinn miðjumann í Birni.

Björn verður einn reynslumesti leikmaður Velje.
„Ég hef ekki spilað mikið á þessu tímabili og ég vonast til þess að spila meira hérna,\" sagði Björn við heimasíðu félagsins.

Björn Daníel fór fyrst í atvinnumennsku til Viking í Noregi árið 2013 og á síðasta ári færði hann sig yfir til Danmerkur.

Hann hefur lítið spilað á tímabilinu og hefur því ákveðið að semja við Velje, sem er á toppnum í B-deildinni í Danmörku.

VB har lejet islandske Björn Daniel Sverrisson i AGF frem til 31. december 2017. Læs mere: https://t.co/RXC1PapO1L #VejleB pic.twitter.com/M361X58cJT

— Vejle Boldklub (@Vejle_B) August 27, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.