27.08.19 - 16:15
Magnús Már Einarsson
Adil Rami til Fenerbahce (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Franski varnarmaðurinn Adil Rami hefur gert eins árs samning við Fenerbahce í Tyrklandi.
Rami var á dögunum rekinn frá franska félaginu Marseille eftir að hann mætti ekki til æfinga.
Rami var á dögunum rekinn frá franska félaginu Marseille eftir að hann mætti ekki til æfinga.
Rami sagðist vera meiddur en hann gerði síðan forráðamenn Marseille brjálaða þegar hann mætti í leðjuslag í raunveruleikasjónvarpi í Frakklandi. Í kjölfarið var hann rekinn frá Marseille.
Hinn 33 ára gamli Rami hefur átt erfitt í einkalífinu undanfarna mánuði eftir að Pamela Anderson hætti með honum en samband þeirra hafði vakið mikla athygli.
Hinn 33 ára gamli Rami hefur átt erfitt í einkalífinu undanfarna mánuði eftir að Pamela Anderson hætti með honum en samband þeirra hafði vakið mikla athygli.
A D I L R A M I. 📢
— Fenerbahçe SK (@Fenerbahce) August 27, 2019
👉 https://t.co/DGfG2VUNO6 pic.twitter.com/Dy5wma8nnC
