27.08.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cucho Hernandez frá Watford til Mallorca (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford hefur lánað framherjann Cucho Hernandez til Mallorca út tímabilið.
Þessi tvítugi Kólumbíumaður varði síðustu tveimur leiktíðum einnig á Spáni, hjá Huesca. Hann hjálpaði liðinu að komast upp í spænsku úrvalsdeildina fyrir síðasta tímabil með því að skora 16 mörk og leggja upp sex í 35 leikjum.
Hann náði ekki sömu hæðum í spænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og skoraði aðeins fjögur mörk og lagði upp þrjú í 34 leikjum er Huesca féll.
Hernandez kom til Watford 2017 en hefur ekki enn spilað fyrir félagið.
Mallorca komst upp í spænsku úrvalsdeildina fyrir tímabilið og er með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina.