Fotbolti.net
27.08.19 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Kyle Lafferty til Sarpsborg (Staðfest)

Kyle Lafferty.

Kyle Lafferty.

Canon

Mynd: Getty Images

Norður-írski framherjinn Kyle Lafferty hefur samið við Sarpsborg 08 sem situr á botni norsku úrvalsdeildarinnar.

Lafferty er 31 árs gamall en hann yfirgaf herbúðir Rangers í Skotlandi í sumar.
Lafferty hefur skorað 20 mörk í 73 landsleikjum með Norður-Írlandi á ferli sínum.

Norwich, Palermo og Burnley eru á meðal félaga sem Lafferty hefur spilað með á ferlinum.

Hann mun nú reyna að hjálpa Sarpsborg að bjarga sér frá falli en Sarpsborg er fimm stigum frá öruggu sæti eftir einungis tvo sigra á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.