27.08.19 - 16:30
Fótbolti.net
„Þetta er sögulega miklu verra en þetta Keflavíkurdæmi"

ÍBV féll úr Pepsi Max-deildinni um helgina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„ÍBV eru fallnir og það er ágúst. Það er ekki búið að pæla nógu mikið í því hversu lélegir þeir eru. Þeir eru með sex stig," sagði Tómas Þór Þórðarson í Innkastinu í gær.
ÍBV féll um helgina úr Pepsi Max-deildinni eftir ellefu ára dvöl í deildinni. Liðið hefur verið í langneðsta sæti í allt sumar, ekki ólíkt Keflavík í fyrra.

„Ég hélt að ég myndi ekki sjá another Keflavík árið eftir. Keflavíkurliðið fékk fjögur stig og vann ekki leik. ÍBV er þó allavega búið að vinna einn fótboltaleik."
„Keflavíkurliðið sem fór niður var nánast dæmt til að fara niður því þeir voru bara með gamla kalla á síðasta spretti og unga Keflvíkinga því það var ekkert til. Þeir gátu ekkert gert nema fengið Lasse Rise sem eyddi laununum sínum á KFC."
„Þetta ÍBV lið er með fullt af atvinnumönnum. Það er búið að gera heilan helling. Þetta er sögulega miklu verra en þetta Keflavíkurdæmi," sagði Tómas Þór. „Miðað við það sem er búið að eyða í liðið þá er þetta meira en skammarlegt."
Eyjamenn hafa blásið í herlúðra fyrir komandi tímabil en í gær tilkynntu þeir að framherjinn Gary Martin og markvörðurinn Halldór Páll Geirsson verði áfram hjá félaginu næsta sumar.
Sjá einnig:
Gary Martin og Halldór Páll spila með ÍBV í Inkasso (Staðfest)