Fotbolti.net
27.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Morata á leið í spænsku B-deildina

Morata á leið í spænsku B-deildina
Canon

Mynd: EPA

Spænski framherjinn Alvaro Morata er óvænt á leið til spænska B-deildarfélagsins Leganes á láni frá Como.
Morata er 33 ára og á að baki ótrúlegan feril en hann hefur leikið með Real Madrid, Chelsea, Juventus, AC Milan, Atletico Madrid, Galatasaray og nú síðast Como.

Hann var á láni hjá Como á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í Meistaradeildinni í fyrsta sinn í sögunni. Ákvæði í lánssamningnum varð til þess að Como festi kaup á Morata en hann er strax á förum eftir að hafa aðeins skorað eitt mark á tímabilinu.

Fabrizio Romano segir hann óvænt vera á leið til Leganes í spænsku B-deildinni á láni út tímabilið.

Leganes er á Madrídarsvæðinu þar sem Morata er fæddur og uppalinn. Hann lék á sínum tíma með yngri liðum Getafe, sem er einnig frá Madrídarsvæðinu, og kemur því kannski helst á óvart að félagið hafi ekki reynt að fá hann aftur í sínar raðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.