27.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópa í dag - Allt undir í umspilinu

Elías Rafn og félagar eru með annan fótinn í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar

Mynd: EPA

Íslendingarnir í Brann mæta PAOK

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Elías Rafn og félagar eru með annan fótinn í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar

Mynd: EPA
Í kvöld ræðst hvaða liða komast áfram í deildarkeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildar Evrópu.
Ísland á tvo fulltrúa í umspili Evrópudeildarinnar. Mikael Neville Anderson og Tómas Óli Kristjánsson eru á mála hjá AGF sem fær portúgalska stórliðið Benfica í heimsókn. Benfica leiðir einvígið 3-1 en takist AGF ekki að vinna upp forskotið fer liðið í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.
Mohamed Salah og félagar í Trabzonspor eiga einnig verk að vinna gegn Ferencváros. Ungverska liðið vann fyrri leikinn 1-0 í Tyrklandi en síðari leikurinn fer fram í Ungverjalandi í kvöld.
Nokkrir Íslendingar verða síðan í eldlínunni í umspili Sambandsdeildarinnar. Kristian Nökkvi Hlynsson og félagar í Twente heimsækja Qarabag til Aserbaísjan eftir 1-0 tap í fyrri leiknum. Eyþór Martin Björgólfsson og Motherwell fara til Þýskalands og mæta Freiburg sem leiðir einvígið 3-1.
Íslendingarnir í Brann fá gríska stórliðið PAOK í heimsókn en staðan þar er 1-1. Kristall Máni Ingason, Eggert Aron Guðmundsson, Kjartan Már Kjartansson og Sævar Atli Magnússon eru allir á mála hjá norska félaginu.
FCK tekur á móti Inter Turku á Parken. Rúnar Alex Rúnarsson átti frábæran leik í Finnlandi og verður fróðlegt að sjá hvort hann standi aftur á milli stanganna. Viktor Bjarki Daðason hefur fengið mínútur eftir að hafa náð sér af meiðslum og Gunnar Orri Olsen hefur einnig verið í hópnum á tímabilinu.
Panathinaikos, lið Sverris Inga Ingasonar, heimsækir Hradec Králové til Tékklands en staðan í einvíginu er 2-2. Sverrir verður ekki með vegna hnémeiðsla.
Brighton tekur þá á móti Tromsö sem hélt enska liðinu í skefjum í markalausum fyrri leik. Elías Rafn Ólafsson verður væntanlega í marki Midtjylland sem heimsækir Rijeka með 2-0 forskot í farteskinu.
Evrópudeildin:
16:00 Ararat-Armenia - Universitatea Craiova (1-1)
16:00 Iberia 1999 - Jagiellonia (0-4)
17:00 Kauno Zalgiris - Besiktas (0-3)
17:00 Lillestrom - Egnatia R (0-0)
17:00 Omonia - Sint-Truiden (0-1)
17:00 Plzen - Rauða stjarnan (0-3)
17:00 Salzburg - Mjallby (1-0)
18:00 AGF Aarhus - Benfica (1-3)
18:00 CSKA Sofia - OFI (0-3)
18:00 Thun - Lech Poznan (0-7)
18:30 Anderlecht - Kairat (3-0)
18:30 Ferencvaros - Trabzonspor (1-0)
Sambandsdeildin:
15:00 KuPS - Shamrock (1-1)
16:00 Jablonec - Rangers (0-1)
16:00 Maccabi Tel Aviv - Lugano (1-2)
16:00 Qarabag - Twente (1-0)
16:45 Freiburg - Motherwell (3-1)
16:45 Mónakó - Gornik Zabrze (3-2)
17:00 SK Brann - PAOK (1-1)
17:00 FCK - Inter Turku (0-0)
17:00 Hradec Kralove - Panathinaikos (2-2)
17:00 Inter Escaldes - Drita FC (2-2)
17:00 Pafos FC - Dinamo Tirana (1-1)
17:00 Rakow - Hajduk Split (2-2)
17:00 Riga - KÍ Klaksvík (0-0)
18:00 Ajax - Sion (4-2)
18:00 Hapoel Tel Aviv - Atalanta (0-0)
18:00 St. Gallen - FC Nordsjaelland (0-1)
18:30 Austria V - Braga (0-2)
18:30 Borac BL - Vikingur R. (3-1)
18:30 Brighton - Tromso (0-0)
18:45 Rijeka - Midtjylland (0-2)
19:00 Hibernian - Gent (0-0)
19:00 Larne FC - Lincoln (2-0)
19:00 Partizan - Getafe (1-3)