27.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Evrópudraumur Víkinga í húfi

Víkingar heimsækja Borac í úrslitaleik um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar. Þessi mynd var tekin á æfingu Víkings í Bosníu.

Mynd: Hörður Ágústsson

Hamar getur komist upp í 3. deild

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Víkingar heimsækja Borac í úrslitaleik um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar. Þessi mynd var tekin á æfingu Víkings í Bosníu.

Mynd: Hörður Ágústsson
Íslandsmeistarar Víkings heimsækja Borac Banja Luka til Bosníu klukkan 18:30 á morgun í seinni leik liðanna í umspili Sambandsdeildar Evrópu, þar sem allt er undir.

TENGT EFNI
Sölvi í Bosníu: Trúum því að við getum snúið stöðunni við
Víkingar töpuðu fyrri leiknum gegn Borac í Víkinni, 3-1, og þurfa því að eiga stórleik ætli þeir sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í annað sinn.
Síðari leikurinn fer fram á Gradski-leikvanginum í Banja Luka í Bosníu og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net. Þá koma stuðningsmenn Víkings saman á Ölveri í Glæsibæ til að horfa á leikinn.
HK tekur á móti Keflavík í Lengjudeild kvenna klukkan 19:15 í Kórnum. HK getur komist upp í annað sæti með sigri og blandað sér af fullum krafti í baráttuna um sæti í Bestu deildinni.
Hvíti riddarinn fær Fjölni í heimsókn í 2. deild karla. Mosfellingar eru á botninum með 16 stig og þurfa nauðsynlega á stigum að halda í fallbaráttunni. Fjölnir er í 6. sæti með 25 stig en getur farið upp í það fjórða með sigri.
Hamar getur síðan fylgt Álftanesi upp í 3. deild með sigri á Álafossi. Gestirnir hafa þó einnig mikið að spila fyrir enda á botninum með átta stig.
Leikir dagsins:
Lengjudeild kvenna
19:15 HK-Keflavík (Kórinn)
2. deild karla
20:00 Hvíti riddarinn-Fjölnir (Malbikstöðin að Varmá)
3. deild karla
17:30 Reynir S.-Víðir (Brons völlurinn)
4. deild karla
18:00 Hamar-Álafoss (Grýluvöllur)
19:15 Elliði-Árborg (Fylkisvöllur)
19:15 Vængir Júpiters-Úlfarnir (Egilshöll)
19:15 Álftanes-ÍH (HTH völlurinn)
Sambandsdeildin
18:30 Borac-Víkingur R. (Gradski Stadion Banja Luka)

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Grótta | 15 | +23 | 35 |
| 2 | Haukar | 15 | +4 | 27 |
| 3 | KR | 15 | +15 | 26 |
| 4 | HK | 15 | +13 | 26 |
| 5 | Selfoss | 15 | +8 | 26 |
| 6 | ÍA | 15 | +6 | 21 |
| 7 | FHL | 15 | +2 | 21 |
| 8 | Keflavík | 15 | +4 | 17 |
| 9 | Völsungur | 15 | -9 | 12 |
| 10 | Tindastóll | 15 | -66 | 3 |