Fabrizio Romano er sá öflugasti þegar kemur að félagaskiptamarkaðnum og hann fullyrðir í kvöld að Alex Telles, leikmaður Porto, sé búinn að ná samkomulagi við Manchester United.
United hefur lengi verið orðað við Brasilíumanninn en liðið á eftir að ná samkomulagi við Porto um kaupverð og fleira.
Ef það tekst ekki þá er United með plan B samkvæmt Romano.
Þá segir hann að Dortmund vilji enn fá 120 milljónir punda fyrir Jadon Sancho. Ef United er ekki tilbúið að greiða þann verðmiða þá verður liði að leita annað.
Alex Telles and Man United found an agreement on personal terms - tonight also on last details and agents commission. #MUFC are in talks with Porto about the fee. Man Utd also have a ‘plan B’.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) September 27, 2020
Re. Sancho: still the same, €120m or nothing. BVB have not received any new bid. 🔴
Athugasemdir