Emile Smith Rowe var heldur betur í skýjunum eftir frábæra frammistöðu í 3-1 sigri Arsenal á Tottenham Hotspur í gær en hann segir að þetta hafi verið besti dagur lífs hans.
Enski leikmaðurinn skoraði fyrsta mark Arsenal eftir undirbúning frá Bukayo Saka áður en hann lagði upp annað markið fyrir Pierre Emerick Aubameyang.
Þetta var í fyrsta sinn sem Smith Rowe skorar gegn Tottenham og gat hann fagnað þessum sigri innilega.
„Þetta er örugglega besti dagur lífs míns. Mig hefur alltaf dreymt um þennan dag að skora fyrir Arsenal gegn Tottenham og það að fjölskyldan sé hérna gerir þetta eiginlega bara að bestu tilfinningu í heimi," sagði Smith Rowe við Sky Sports.
Best day of my life!❤️ pic.twitter.com/kAoOgoo9QK
— Emile Smith Rowe (@emilesmithrowe) September 26, 2021
Athugasemdir