Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 27. september 2022 20:06
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Gullfalleg afgreiðsla Sesko gegn Svíum
Benjamin Sesko fagnar marki sínu
Benjamin Sesko fagnar marki sínu
Mynd: EPA
Slóvenski framherjinn Benjamin Sesko kom Slóvenum yfir gegn Svíum í B-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld og var afgreiðslan í hæsta gæðaflokki.

Þessi 19 ára gamli framherji kom Slóvenum yfir á 28. mínútu eftir langa sendingu frá Petar Stojanovic.

Hann var í þröngu færi og eina í stöðunni að taka hann á lofti, sem og hann gerði, en hann smellhitti boltann yfir Robin Olsen í markinu.

Sesko er einn efnilegasti framherji heims. Hann er á mála hjá RB Salzburg í Austurríki en mun ganga í raðir Leipzig á næsta ári. Man Utd hafði gríðarlegan áhuga á honum í sumar en Sesko taldi að réttast væri að þróa ferilinn í Þýskalandi.

Mark hans má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner