Fotbolti.net
27.10.17 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Bayern semur við sextán ára Svía (Staðfest)

Bayern semur við sextán ára Svía (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bayern Munchen hefur samið við sænska miðjumanninn Alex Timossi Andersson hjá Helsingborg.

Hinn 16 ára gamli Alex hefur skorað tvö mörk í sextán leikjum með Helsingborg í sænsku B-deildinni á þessu tímabili. Hann hefur einnig vakið mikla athygli með yngri landsliðum Svía.

Alex gengur í raðir Bayern sumarið 2019 en fram að því mun hann leika með Helsingborg.
„Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður sem við teljum að geti staðið sig hjá FC Bayern,\" sagði Hasan Salihamidzic yfirmaður íþróttamála hjá Bayern.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.