Fotbolti.net
27.10.17 - 20:08
Brynjar Ingi Erluson

Brynjar Kristmundsson í Þrótt V. (Staðfest)

Úlfur Blandon, nýr þjálfari liðsins ásamt Brynjari Kristmundssyni.

Úlfur Blandon, nýr þjálfari liðsins ásamt Brynjari Kristmundssyni.

Canon

Mynd: Þróttur Vogum

Þróttur V. samdi í dag við Brynjar Kristmundsson en hann kemur frá Fram. Samningurinn er til næstu tveggja ára.
Brynjar, sem er fæddur árið 1992, er uppalinn í Ólafsvík og lék með Víkingum áður en hann fór í Val árið 2011. Hann lék sautján leiki fyrir Val áður en hann ákvað að taka Ólafsvíkurævintýrið aftur.

Hann samdi við Fram fyrir tímabilið í fyrra og lék nokkra leiki fyrir félagið áður en hann var sendur á lán til Gróttu. Hann lék þá með Fram í allt sumar en hefur ákveðið að söðla um.

Hann gerði tveggja ára samning við Þrótt Vogum sem mun leika í 2. deildinni á komandi tímabili.

Úlfur Blandon er þá nýr þjálfari liðsins en hann þjálfaði áður meistaraflokk kvenna Vals.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.