Fotbolti.net
27.10.17 - 15:44
Magnús Már Einarsson

Kenan Turudija í Selfoss (Staðfest)

Kenan Turudija í leik gegn FH í sumar þar sem hann skoraði í 2-0 sigri.

Kenan Turudija í leik gegn FH í sumar þar sem hann skoraði í 2-0 sigri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Selfoss í Inkasso-deildinni hefur gert tveggja ára samning við Bosníumanninn Kenan Turudija.

Kenan hefur verið fastamaður í liði Víkings Ólafsvíkur undanfarin þrjú tímabil en þar hefur hann aðallega spilað á miðjunni.
Kenan er 27 ára gamall en hann spilaði með Sindra í 2. deildinni sumarið 2014 áður en hann gekk til liðs við Víking Ólafsvík.

Í sumar skoraði Kenan fimm mörk í tuttugu leikjum þegar Víkingur féll úr Pepsi-deildinni.

Hann hefur leikið hátt í sextíu leiki með Víkingi Ó. í Pepsi-deildinni og 1. deildinni og skorað í þeim tólf mörk.

„Þetta er öflugur leikmaður sem getur leyst margar stöður á miðsvæðinu. Sterkur miðjumaður sem skorar mörk og hefur sannað sig í Pepsi-deildinni. Hann er klárlega mikill fengur fyrir okkur,“ segir Gunnar Borgþórsson, þjálfari Selfoss.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.