Fotbolti.net
27.10.17 - 21:22
Brynjar Ingi Erluson

Ragnar Bragi Sveinsson í Fylki (Staðfest)

Ragnar Bragi Sveinsson skrifaði undir í kvöld

Ragnar Bragi Sveinsson skrifaði undir í kvöld

Canon

Mynd: Heimasíða Fylkis

Knattspyrnudeild Fylkis staðfesti í kvöld komu Ragnars Braga Sveinssonar til félagsins en hann gerir þriggja ára samning við uppeldisfélagið.
Ragnar Bragi, sem er fæddur árið 1994, er uppalinn í Fylki en fór til Kaiserslautern ungur að aldri áður en hann kom aftur heim í Fylki árið 2014.

Hann fór yfir í Víking R. fyrir síðasta tímabil en fékk lítið að spila og var í kjölfarið lánaður til Fylkis fyrir síðari hlutann í sumar og blómstraði hann undir stjórn Helga Sigurðssonar.

Hann hefur nú gert þriggja ára samning við Fylki en hann mun því renna út í lok árs 2020.

Þetta eru gleðitíðindi fyrir Fylkismenn sem safna nú liði fyrir komandi baráttu í Pepsi-deild karla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.