27.10.18 - 13:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brynjar Ásgeir aftur í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Brynjar Ásgeir Guðmundsson er genginn aftur í raðir FH eftir tveggja ára dvöl hjá Grindavík.
FH var að senda frá sér tilkynningu þess efnis en Brynjar Ásgeir skrifar undir tveggja ára samning við FH.
Brynjar Ásgeir spilaði 13 leiki með Grindavík í Pepsi-deildinni í sumar en handarbrot um mitt mót setti þar strik í reikninginn.
Brynjar er uppalinn hjá FH og þekkir hann hvern krók og kima í Kaplakrikanum. Hann hóf að leika með meistaraflokki félagsins í Pepsi-deildinni árið 2012.
Hann er fjölhæfur leikmaður, getur spilað flestar stöður á vellinum og á að baki 92 leiki í deild og bikar og hefur skorað 6 mörk.
FH endaði í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar og alveg ljóst að stefnan er að gera mun betur á næsta tímabili.
Guðmann er annar leikmaðurinn sem FH fær til sín eftir að tímabilinu lauk. Varnarmaðurinn Guðmann Þórisson samdi við félagið á dögunum, en eins og Brynjar Ásgeir, þá lék hann áður í Hafnarfirðinum, með FH.

Brynjar Ásgeir Guðmundsson skrifaði í dag undir 2 ára samning við FH. Við bjóðum @brynjargud innilega velkominn heim í Kaplakrika. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/7cMJNX2b4O
— FHingar.net (@fhingar) October 27, 2018