Fotbolti.net
27.10.19 - 15:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stefanía í Fylki (Staðfest)

Stefanía fagnar hér marki með Fylki.

Stefanía fagnar hér marki með Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Stefanía Ragnarsdóttir hefur komist að samkomulagi við Fylki um að leika með félaginu næstu tvö árin.
Stefanía er fædd árið 2000 og er uppalin hjá Þrótti Reykjavík. Hún hefur spilað með Val frá árinu 2017, en var á láni hjá Fylki fyrri hluta síðasta tímabils, þar sem hún spilaði 11 leiki með liðinu og stóð sig mjög vel.

Stefanía hefur spilað 67 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 10 mörk. Þá á hún að baki 36 leiki með yngri landsliðum Íslands og hefur gert í þeim leikjum sex mörk.

„Það er frábært að fá Stefaníu til okkar í Fylki. Við fengum að kynnast henni vel síðasta sumar þegar hún var á láni hjá okkur. Þau kynni voru mjög góð. Stefanía er mikið efni en hefur líka mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur," segir Kjartan Stefánsson, þjálfari Fylkis.

„Stefanía á eftir að styrkja okkar lið og hlökkum við í þjálfarateyminu til að vinna með Stefaníu í framtíðinni sem og okkar flotta leikmannahópi í heild."

Fylkir, sem hafnaði í sjötta sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð, bætti á dögunum við sig fjórum unglingalandsliðstelpum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.