Fotbolti.net
27.11.12 - 22:33
Magnús Már Einarsson

Veigar Páll í Stjörnuna (Staðfest) - Gerir fjögurra ára samning

Veigar Páll í Stjörnuna (Staðfest) - Gerir fjögurra ára samning
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Veigar Páll Gunnarsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Stjörnuna en þetta kemur fram á heimasíðunni hjá stuðningsmannasveitinni Silfurskeiðinni.

Veigar Páll skrifaði undir hvorki meira né minna en fjögurra ára samning við Stjörnuna en hann mun hefja æfingar með liðinu á næstu vikum.
Þessi 32 ára gamli leikmaður yfirgaf á dögunum herbúðir Stabæk í Noregi þar sem hann var í miklum metum.

Veigar gekk í raðir Stabæk árið 2004 og sló í gegn hjá félaginu en hann fór einnig til Nancy í Frakklandi í skamman tíma sem og til Valerenga í Noregi.

Hjá Stjörnunni mun Veigar væntanlega mynda öflugt sóknarteymi með jafnaldra sínum Garðari Jóhannssyni en þeir léku saman hjá Garðabæjarliðinu á sínum tíma.

Veigar, sem á 34 landsleiki að baki, lék síðast í Garðabænum árið 2000 en hann hefur einnig leikið með KR á Íslandi.

Heimild: Silfurskeiðin.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.