27.11.17 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Montella rekinn frá AC Milan - Gattuso tekur við (Staðfest)

Gennaro Gattuso.

Mynd: Getty Images

Gennaro Gattuso.

Mynd: Getty Images
AC Milan hefur ákveðið að reka þjálfara sinn Vincenzo Montella úr starfi.
Gennaro Gattuso, fyrrum miðjumaður AC Milan, hefur tekið við starfinu af honum.
AC Milan gerði markalaust jafntefli við Torino í gær en liðið er núna í sjöunda sæti í Serie A, ellefu stigum frá Meistaradeildarsæti.

Montella tók við AC Milan í fyrra eftir að hafa áður stýrt Catania, Fiorentina og Sampdoria.
Harðjaxlinn Gattuso tekur stöðu hans en hann hefur verið þjálfari hjá unglingaliði AC Milan.
Gattuso lék í 14 ár með AC Milan en hann hefur undanfarin ár þjálfað Sion í Sviss, OFI Crete í Grikklandi sem og Palermo og Pisa á Ítalíu.

Vincenzo Montella.

Mynd: Getty Images