Fotbolti.net
27.11.18 - 19:11
Magnús Már Einarsson

Lára Kristín í Þór/KA (Staðfest)

Lára í leik gegn Þór/KA.

Lára í leik gegn Þór/KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Miðjumaðurinn Lára Kristín Pedersen hefur gengið til liðs við Þór/KA eftir fimm ár í herbúðum Stjörnunnar.

Lára skrifaði undir tveggja ára samning hjá Þór/KA.

Lára hefur verið einn öflugasti miðjumaðurinn í Pepsi-deild kvenna undanfarin ár og í lykilhlutverki hjá Stjörnunni. Í haust var Lára valin leikmaður tímabilsins hjá Stjörnunni.
Hin 24 ára gamla Lára ólst upp hjá Aftureldingu en hún hefur leikið með Stjörnunni síðan árið 2014.

Lára rifti samningi sínum við Stjörnuna í lok síðasta mánaðar og nokkur félög reyndu að fá hana í sínar raðir í kjölfarið. Lára hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við Þór/KA.

„Ég er mjög ánægður með að fá þennan gæðaleikmann til liðs við okkar sterka hóp. Lára hefur verið einn besti miðjumaður deildarinnar undanfarin ár og hæfileikar hennar og reynsla munu nýtast mjög vel í baráttu okkar um alla þá titla sem eru í boði. Við væntum mikils af henni og hlökkum til að fá hana norður og til liðs við okkur. Ég veit að hún mun smellpassa inn í liðið hjá okkur," segir Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Þórs/KA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.