Fotbolti.net
27.11.18 - 16:31
Magnús Már Einarsson

Óskar Elías Zoega aftur í ÍBV (Staðfest)

Óskar varð bikarmeistari með ÍBV árið 2017.

Óskar varð bikarmeistari með ÍBV árið 2017.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV hefur fengið varnarmanninn Óskar Elías Zoega Óskarsson aftur í sínar raðir en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í gær. Þetta staðfesti Óskar í samtali við Fótbolta.net í dag.
Óskar er uppalinn Eyjamaður en á síðasta tímabili spilaði hann með Þór í Inkasso-deildinni.

Óskar Elías spilaði alla leiki Þórs síðastliðið sumar en eftir tímabilið ákvað hann að yfirgefa herbúðir félagsins.

Hann er nú kominn aftur til ÍBV þar sem hann varð bikarmeistari árið 2017.

Samtals hefur Óskar skorað fimm mörk í 77 meistaraflokksleikjum á ferlinum en hann hefur einnig spilað með KFS og BÍ/Bolungarvík á ferlinum.

ÍBV endaði í 6. sæti í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili en Pedro Hipolito tók við þjálfun liðsins í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.