27.11.18 - 14:01
Magnús Már Einarsson
Sol Campbell tekur við Macclesfield (Staðfest)

Campbell á golfvellinum í Vestmanneyjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Macclesfield í ensku D-deildinni hefur ráðið Sol Campbell sem knattspyrnustjóra.
Hinn 44 ára gamli Campbell lék lengi með Tottenham og Arsenal sem og enska landsliðinu.

Campbell hefur nú fengið tækifæri sem knattspyrnustjóri en hann gerði eins og hálfs árs samning við Macclesfield.
Campbell hefur áður lýst yfir áhuga á að komast í þjálfun en hann hefur verið að fá starfsreynslu með því að aðstoða U21 árs landslið Englendinga á æfingum.
Macclesfield er á botninum í ensku D-deildinni með tíu stig, sjö stigum frá öruggu sæti. Campbell á því mikið verk fyrir höndum.

Drink anyone???? pic.twitter.com/vBRnExpXu4
— Macclesfield Town (@thesilkmen) November 27, 2018