Fotbolti.net
27.11.18 - 11:13
Magnús Már Einarsson

Þorlákur ráðinn yfirmaður knattspyrnumála í Hong Kong (Staðfest)

Láki er á leið til Hong Kong.

Láki er á leið til Hong Kong.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar N1 og KSÍ, hefur verið ráðinn sem yfirmaður knattspyrnumála hjá knattspyrnusambandi Hong Kong en um er að ræða tveggja ára samning.
Þorlákur hefur störf í janúar næstkomandi.

„Ég er gríðarlega stoltur að vera boðið þetta starf. Það sýnir í raun hversu mikil virðing er borin fyrir íslenskum fótbolta í dag," sagði Þorlákur.

Þorlákur er reyndur þjálfari en hann var ráðinn yfirmaður Hæfileikmótunar hjá KSÍ fyrir ári síðan.

Þorlákur þjálfaði áður U17 ára landslið karla en hann hefur einnig stýrt meistaraflokki karla hjá Val og Fylki sem og meistaraflokki kvenna hjá Stjörnunni á þjálfaraferli sínum.

KSÍ hefur nú þegar auglýst eftir eftirmanni Þorláks í Hæfileikamótun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.