Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. nóvember 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mourinho hrósar Alli: Kom mér ekki á óvart
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho valdi í gær Dele Alli í fyrsta sinn í liðið eftir slaka frammistöðu gegn Antwerp fyrir um mánuði síðan.

Tottenham vann 4-0 sigur á Ludogorets á heimavelli og uppskar Alli lof frá Mourinho eftir leik.

„Hann hefði getað skorað en Vinicius var í betra færi og upp úr kom auðvelt mark. Liðsmaður gerir svona, engin áhætta og staðan orðin 2-0. Þetta kemur mér ekki á óvart frá honum," sagði Mourinho um Alli í öðru marki Tottenham sem Alli lagði upp fyrir Carlos Vinicius sem skoraði fyrstu tvö mörk leiksins.

„Dele var eins og liðið í kvöld. Mjög góður í fyrri hálfleik og í fyrri hluta seinni hálfleik reyndu þeir að múra fyrir og fá ekki á sig fleiri mörk. Við reyndum ekki eins mikið að skora og vorum aldrei hræddir um að fá á okkur mark. Við slökuðum aðeins á," sagði Mourinho.

Sigurinn var fimmti sigur Spurs í röð í öllum keppnum og þriðji leikurinn í röð sem liðið heldur hreinu.

Athugasemdir
banner
banner