Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 27. nóvember 2022 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Markmenn slá met á HM
Mynd: EPA

Wojciech Szczesny markvörður pólska landsliðsins varði víti í 2-0 sigri Póllands gegn Sádí Arabíu í gær.


Það var þriðja vítið sem hefur verið varið á mótinu til þessa. Guillermo Ochoa hjá Mexíkó varði einmitt frá Pólverjanum Robert Lewandowski í 2-0 sigri. Þá varði Thibaut Courtois markvörður Belgíu frá Alphonso Davies leikmanni Kanada í 1-0 sigri.

Þetta er í fyrsta sinn á HM frá 1966 sem þrír markverðir verja víti og halda hreinu og það getur enn bæst í hópinn.

Courtois mætir aftur til leiks í dag þegar Belgía mætir Marokkó kl 13.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner