Fotbolti.net
27.12.12 - 17:10
Magnús Már Einarsson

Bebe til Rio Ave (Staðfest)

Bebe til Rio Ave (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bebe, framherji Manchester United, hefur gengið til liðs við portúgalska félagið Rio Ave á láni.

Bebe kom til Manchester United frá Guimaraes á 7,4 milljónir punda sumarið 2010 en Sir Alex Ferguson stjóri United viðurkenndi þá að hann hefði aldrei séð leikmanninn spila.
Hinn 22 ára gamli Bebe hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Manchester United.

Á síðasta tímabili var Bebe í láni hjá Besiktas en þar settu hnémeiðsli strik í reikninginn. Í vetur hefur hann síðan spilað með varaliði Manchester United.

,,Ég er í fínu líkamlegu ástandi. Ég er alltaf að æfa og spila. Það er gott að koma hingað og ég vil sýna hvað ég get,\" sagði Bebe í dag.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.