27.12.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Fomenko tekur við úkraínska landsliðinu (Staðfest)

Úkraínumenn hafa ráðið nýjan landsliðsþjálfara.

Mynd: Getty Images

Mykhailo Fomenko fyrrverandi landsliðsmaður Sovétríkjanna hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Úktaínu.
Knattspyrnusamband þjóðarinnar tilkynnti um ráðninguna í gær en Fomenko skrifaði undir eins árs samning með möguleika á einu ári til viðbótar.
Hann er 64 ára gamall og tekur við starfinu af Oleg Blokhin sem hætti í september en liðinu tókst ekki að komast upp úr riðlakeppni Evrópumótsins í sumar.
Fomenko fór í gegnum knattspyrnuskóla Sovétríkjanna og spilaði 24 landsleiki fyrir þjóðina. Hann var í liði Dynamo Kiev á áttunda áratug síðustu aldar. Hann hóf svo þjálfaraferilinn árið 1979 og hefur stýrt Metalist Kharkiv og fjölda annarra liða.
Úkraína hafði rætt við Harry Redknapp og Sven Göran Eriksson um að taka að sér starfið en án árangurs.

Heimild: AP