27.12.16 - 17:30
Magnús Már Einarsson
McManaman lánaður til Sheffield Wednesday (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sheffield Wednesday hefur fengið kantmanninn Callum McManaman á láni frá WBA.
Lánssamningurinn er út tímabilið en hann tekur gildi um áramót.
Hinn 25 ára gamli McManaman kom til WBA frá Wigan í janúar 2015 og hefur á tveimur árum spilað 25 leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Á þessu tímabili hefur McManaman verið úti í kuldanum hjá Tony Pulis en hann hefur ekki spilað neinn leik með WBA.

Sheffield Wednesday er í 6. sæti í ensku Championship deildinni en liðið lagði Newcastle 1-0 á útivelli í gær.