27.12.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ásta Sól gengin til liðs við Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásta Sól Stefánsdóttir er búin að skrifa undir tveggja ára samning við Hauka, sem leika í Inkasso-deild kvenna næsta sumar.
Ásta Sól, fædd 2001, er uppalin hjá Selfossi og á átta keppnisleiki að baki með meistaraflokki. Hún kom einu sinni við sögu í Pepsi Max-deild kvenna síðasta sumar og þrisvar sinnum í fyrra.
Ásta leikur yfirleitt sem sóknartengiliður en er afar fjölhæf og með góða aðlögunarhæfni.
„Ásta mun efla hópinn okkar fyrir komandi baráttu. Stjórn knattspyrnudeildar býður Ástu Sól velkomna í Hauka," segir á vefsíðu Hauka.
Í heildina á Ásta 28 leiki að baki fyrir meistaraflokk Selfoss.