Fotbolti.net
28.01.17 - 11:00
Arnar Geir Halldórsson

Halilovic lánaður til Las Palmas (Staðfest)

Alen Halilovic lék með Sporting Gijon á síðustu leiktíð

Alen Halilovic lék með Sporting Gijon á síðustu leiktíð

Canon

Mynd: Getty Images

Króatíski miðjumaðurinn Alen Halilovic hefur verið lánaður frá þýska úrvalsdeildarliðinu Hamburg til spænska úrvalsdeildarliðsins Las Palmas.
Hamburg keypti Halilovic frá Barcelona síðasta sumar en þessi tvítugi leikmaður hefur ekki náð að festa sig í sessi í þýsku Bundesligunni. Hann hefur komið við sögu í sex leikjum með Hamburg í vetur.

Halilovic var á sínum tíma talinn einn efnilegasti leikmaður heims og þegar Barcelona seldi hann síðastliðið sumar setti Katalóníurisinn ákvæði um að geta keypt Króatann aftur til baka á tíu milljónir evra á næstu tveimur árum.

Lánssamningur Halilovic hjá Las Palmas gildir út næstu leiktíð en liðið situr í ellefta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.