Fotbolti.net
28.01.17 - 17:28
Kristófer Kristjánsson

QPR kaupir strák af Manchester United (Staðfest)

Sean Goss

Sean Goss

Canon

Mynd: Getty Images

Queens Park Rangers hefur keypt Sean Goss, 21 árs gamlan miðjumann frá Manchester United.

Goss hefur skrifað undir samning sem gildir í þrjú og hálft ár við B-deildarliðið en kaupverðið er óuppgefið.
Goss kom til Man United frá Exeter árið 2012 en hann spilaði aldrei með aðalliðinu.

Leikmaðurinn fæddist í Þýskalandi en hann hefur verið stuðningsmaður Manchester United alla tíð og var honum líkt við Michael Carrick er hann var yngri.

Hann vann titilinn með U-21 árs liði United fyrir tveim árum síðan en mikil meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá stráknum.

Goss komst á varamannabekk Manchester United í nóvember árið 2015.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.