28.01.19 - 20:23
Ívan Guðjón Baldursson
Ásgeir Börkur til HK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
HK er búið að ganga frá samningi við miðjumanninn grjótharða Ásgeir Börk Ásgeirsson.
Ásgeir Börkur kemur til félagsins eftir tíu ára dvöl hjá Fylki þar sem hann lék mikilvægt hlutverk sem afturliggjandi miðjumaður.
Ásgeir verður 32 ára í apríl og er búinn að skrifa undir samning sem gildir út leiktímabilið í ár.
Ásgeir kemur inn með mikla reynslu og er mikilvæg viðbót við skemmtilegt lið HK sem komst upp úr Inkasso-deildinni síðasta sumar.
Ásgeir hefur áður leikið fyrir Selfoss hér á landi en var á mála hjá Sarpsborg í Noregi og GAIS í Svíþjóð fyrir fimm árum.