28.01.19 - 15:17
Magnús Már Einarsson
Berglind Björg til PSV á láni (Staðfest)

Berglind fagnar marki síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Berglind fagnar marki síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Berglind Björg Þorvaldsdóttir, framherji Breiðabliks og íslenska landsliðsins, hefur gengið til liðs við hollenska félagið PSV Eindhoven á láni. Mbl.is greinir frá þessu í dag.
Um er að ræða lánssamning fram á vor en Berglind verður mætt aftur til Íslands fyrir fyrsta leik Breiðabliks í Pepsi-deildinni þann 2. maí.
Um er að ræða lánssamning fram á vor en Berglind verður mætt aftur til Íslands fyrir fyrsta leik Breiðabliks í Pepsi-deildinni þann 2. maí.
„Ég fékk símtal eftir landsleikinn á mánudaginn (gegn Skotum). Þá var mér sagt að liðið hefði áhuga á því að fá mig og ég ákvað að slá til. Mér finnst fínt að fara bara á lán. Það er svo langt undirbúningstímabil hérna heima svo það er gaman að breyta til, brjóta þetta aðeins upp og fá að spila alvöru leiki þarna úti. Koma svo fersk til baka þegar tímabilið byrjar,“ sagði Berglind við mbl.is.
Varnarmaðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir samdi við PSV Eindhoven á dögunum og þær Berglind verða nú liðsfélagar.
Hin 27 ára gamla Berglind varð markadrottning í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar með 19 mörk í 18 leikjum en Breiðablik varð bæði Íslands og bikarmeistari á síðasta tímabili.