Fotbolti.net
28.01.19 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Devin Morgan í Leikni F. (Staðfest)

Devin Morgan.

Devin Morgan.

Canon

Mynd: Leiknir F.

Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið bandaríska miðvörðinn Devin Morgan í sínar raðir.

Morgan er 25 ára gamall en hann var á reynslu í leikjum með Leikni gegn Þór og KA2 í Kjarnafæðismótinu á dögunum og þar þótti hann standa sig með prýði.
Devin hefur meðal annars leikið með Södertalje FK í næst efstu deild í Svíðþjóð og Tulsa Roughnecks í næst efstu deild Bandaríkjanna.

„Leiknir býður Devin hjartanlega velkominn til félagsins," segir á Facebook síðu Leiknis.

Leiknir endaði í tíunda sæti í 2. deildinni í fyrra en Brynjar Skúlason tók við þjálfun liðsins í haust.

Hér má sjá skemmtileg myndband af Devon prófa að troða í körfuna í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.