Fotbolti.net
28.01.19 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Mathias Normann til Rostov (Staðfest)

Mathias Normann til Rostov (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rússneska Íslendingaliðið Rostov hefur fengið miðjumanninn Mathias Normann frá Brighton.

Þessi 22 ára Norðmaður kom til Brighton frá Bodö/Glimt í júlí 2017, hann náði ekki að vinna sér inn í aðalliðið.
„Það hefur verið ánægjulegt að vinna með Mathias en í þessari stöðu er rétt fyrir hann að taka þessu spennandi tilboði," segir Simon Rusk, þjálfari varaliðs Brighton.

Í fyrra var Normann lánaður til Molde í Noregi.

„Eftir að hann kom úr láni í Noregi hefur Mathias sýnt gæði sín og leikið vel með varaliðinu. Við óskum honum alls hins besta í Rússlandi."

Íslensku landsliðsmennirnir Ragnar Sigurðsson, Sverrir Ingi Ingason, Björn Bergmann Sigurðarson og Viðar Örn Kjartansson eru hjá Rostov.

Rostov er í sjöunda sæti í Rússlandi en nú er vetrarfrí í gangi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.