28.01.19 - 21:56
Ívan Guðjón Baldursson
Medhi Benatia til Al-Duhail (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus er búið að staðfesta félagaskipti Medhi Benatia til Al-Duhail, sem er ríkjandi meistari í Katar.
Benatia er 31 árs miðvörður sem hefur verið eftirsóttur af stórliðum á borð við Arsenal og Manchester United undanfarin misseri.
Ítalskir fjölmiðlar telja að Benatia hafi getað valið á milli Al-Duhail og Man Utd fyrr í janúar en hann hafi kosið að fara til Katar þar sem honum var lofað miklum spilatíma.
Al-Duhail borgar um 10 milljónir evra fyrir Benatia sem átti eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Ítalíumeistarana.
Martin Caceres mun taka stöðu Benatia í leikmannahópi Juventus en hann er á leið til félagsins frá Lazio.