Fotbolti.net
28.01.19 - 15:37
Elvar Geir Magnússon

Morata til Atletico Madrid (Staðfest)

Morata til Spánar.

Morata til Spánar.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski sóknarmaðurinn Alvaro Morata er genginn í raðir Atletico Madrid frá Chelsea.

Spænski sóknarmaðurinn hefur verið lánaður til Atletico út næsta tímabil. Klásúla er um að Atletico geti keypt hann alfarið.

Átján mánuðir eru síðan Morata gekk í raðir Chelsea en hann náði ekki að aðlagast enska boltanum. Hann hefur ekki skorað í ensku úrvalsdeildinni síðan í byrjun nóvember.

Hann hefur verið skilinn eftir utan hóps síðustu vikur.

Chelsea var tilbúið að láta Morata fara eftir að félagið fékk Gonzalo Higuain lánaðan frá Juventus.

Morata er fyrrum leikmaður Real Madrid og Juventus.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.