Fotbolti.net
28.01.19 - 12:05
Magnús Már Einarsson

Tryggvi Hrafn í ÍA (Staðfest)

Tryggvi fagnar marki í leik með ÍA árið 2017.

Tryggvi fagnar marki í leik með ÍA árið 2017.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA hefur fengið sóknarmanninn Tryggva Hrafn Haraldsson aftur í sínar raðir frá Halmstad í Svíþjóð.
Hinn 22 ára gamli Tryggvi er uppalinn hjá ÍA en hann skoraði fimm mörk í þrettán leikjum í Pepsi-deildinni árið 2017 áður en Halmstad keypti hann um mitt sumar.

Tryggvi skoraði þrjú mörk í 27 leikjum með Halmstad en á síðasta tímabili var hann mikið á bekknum hjá liðinu í sænsku B-deildinni.

„Það voru tvö íslensk félög sem vildu fá hann og núna fer hann aftur í liðið sem hann kom frá," sagði Tony Karlsson yfirmaður íþróttamála hjá Halmstad.

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari meistaraflokks karla segist í samtali við heimasíðu ÍA vera mjög ánægður með að Tryggvi Hrafn hafi gengið til liðs við ÍA á nýjan leik. Þrátt fyrir ungan aldur hafi hann spilað í efstu deild áður og slík reynsla muni reynast mikilvæg í sumar. Hann sé góður leikmaður sem muni styrkja liðið fyrir komandi baráttu.

Skagamenn unnu Inkasso-deildina síðastliðið sumar en þeir hafa bætt vel í sóknarlínu sína í vetur. Viktor Jónsson, markakóngur Inkasso-deildarinnar í fyrra, kom frá Þrótti R. og spænski sóknarmaðurinn Gonzalo Zamorano kom frá Víkingi Ólafsvík.

Komnir:
Gonzalo Zamorano Leon frá Víkingi Ó.
Jón Gísli Eyland Sveinsson frá Tindastóli
Óttar Bjarni Guðmundsson frá Stjörnunni
Tryggvi Hrafn Haraldsson frá Halmstad
Viktor Jónsson frá Þrótti R.

Farnir:
Garðar Bergmann Gunnlaugsson í Val
Vincent Weijl
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.