Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. janúar 2020 12:29
Elvar Geir Magnússon
Barcelona í viðræðum um Rodrigo
Rodrigo Moreno.
Rodrigo Moreno.
Mynd: Getty Images
Barcelona vill fá sóknarmanninn Rodrigo Moreno og er í viðræðum við Valencia.

Rodrigo mætti aftur úr meiðslum í 2-0 sigri Valencia gegn Barcelona á laugardaginn.

Börsungar vilja fá inn tímabundna lausn vegna meiðsla Luis Suarez sem ekki verður meira með á tímabilinu.

Forseti Valencia, Anil Murthy, hefur verið að funda með æðstu mönnum Spánarmeistarana en samkomulag er ekki í höfn.

Barcelona vill fá Rodrigo lánaðan út tímabilið en Valencia vill selja hann.

Börsungar vilja bíða og sjá hvernig Rodrigo stendur sig áður en leikmaðurinn verður keyptur.

Rodrigo er 28 ára og hefur skorað átta mörk í 21 landsleik fyrir Spán.
Athugasemdir
banner
banner
banner