Ítalska félagið Inter er búið að kynna Christian Eriksen sem nýjan leikmann félagsins.
Þessi 27 ára leikmaður gekkst undir læknisskoðun í gærkvöldi og hefur nú gert langtímasamning við Inter.
Eriksen fór ekki leynt með vilja sinn að yfirgefa Tottenham en samningur hans við félagið hefði runnið út í sumar. Inter fékk leikmanninn því á afsláttarverði. Talað er um að kaupverðið sé tæplega 17 milljónir punda.
Inter er í öðru sæti ítölsku A-deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Juventus.

🚨 | ANNOUNCEMENT
— Inter (@Inter_en) January 28, 2020
Milano: your elegance is about to meet its match.
👉 https://t.co/5NPAw5M3Xj#WelcomeChristian #NotForEveryone ⚫🔵 pic.twitter.com/on6q0fIVvP
Athugasemdir