Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. janúar 2020 06:00
Aksentije Milisic
Hertha Berlín kaupir Tousart (Staðfest) - Kemur næsta sumar
Tousart í baráttunni.
Tousart í baráttunni.
Mynd: Getty Images
Hertha Berlín hefur keypt miðjumanninn Lucas Tousart frá Lyon. Tousart fer aftur til baka til Lyon og verður þar á láni út tímabilið en eftir það gengur hann endanlega í raðir Hertha Berlín.

Þessi 22 ára gamli leikmaður kostaði 24 milljónir evra en hann á að baki 108 leiki fyrir Lyon og hefur skorað í þeim þrjú mörk.

„Það er eitthvað mjög spennandi að gerast í Berlín og ég vil vera hluti af því. En á sama tíma er ég mjög ánægður með að fá að klára mína vinnu hér hjá Lyon," sagði Tousart.

Hertha Berlín situr í 13. sæti þýsku deildarinnar en liðið mætir Schalke á föstudaginn kemur.


Athugasemdir
banner