28.02.19 - 15:13
Elvar Geir Magnússon
Árni Vill kynntur hjá Chornomorets Odesa (Staðfest)

Árni er fyrsti íslenski fótboltamaðurinn sem semur við félag í Úkraínu.

Mynd: Chornomorets Odesa

Árni Vilhjálmsson var í dag kynntur sem nýr leikmaður úkraínska liðsins Chornomorets Odesa en hann kemur á láni frá pólska félaginu Termaliki Nieciecza.
Árni náði ekki að festa sig í sessi hjá Termaliki Nieciecza.

Ibiza Austur-Evrópu
„Þetta er æðislegur staður, eins konar sumardvalarstaður fyrir Rússa og Úkraínumenn hérna við Svartahafið, sem þeir kalla „Ibiza Austur-Evrópu". Þetta er ansi fallegur staður á sumrin til að vera á," sagði Árni í viðtali við Morgunblaðið um staðsetningu nýja félagsins.
Árni er fyrsti íslenski fótboltamaðurinn sem semur við félag í Úkraínu.
„Maður fékk aðeins færri leiki og mínútur en maður hafði vonast til og búist við í Póllandi, en að fá skref upp á við eftir þetta fáar mínútur gerir mann bara enn hungraðri og graðari í að gera vel hérna."
Chermorec er í næst neðsta sæti úkraínsku úrvalsdeildarinnar með fimmtán stig eftir nítján leiki. Liðið á erfiðan leik á laugardag, gegn toppliðinu Shakhtar Donetsk.
„Það er ágætisbyrjun að byrja bara á móti þeim bestu. Það vita allir hve sterkt lið Shakhtar Donetsk er eftir að hafa séð liðið í hverri viku í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni. Þetta verður alvöruleikur og félagaskipti mín verða klár fyrir hann," sagði Árni við Morgunblaðið.