28.02.19 - 20:58
Arnar Helgi Magnússon
Emil Hallfreðs til Udinese (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson er genginn til liðs við Udinese en hann þekkir vel til liðsins eftir að hafa leikið með félaginu á árunum 2016-2018.
Emil lék 58 leiki fyrir liðið á þeim árum.

Emil fór í aðgerð á hné í byrjun desember en hann rifti samning sínum við Frosinone í janúar, Frosinone er í fallsæti ítölsku A-deildarinnar.
Hann hefur æft með Udinese undanfarnar vikur og verið í endurhæfingu þar eftir aðgerðina.
Emil sagði í viðtali við Fótbolta.net á dögunum að endurhæfingin væri á fullu og enn væri eitthvað í það að hann kæmist á völlinn.
„Það er mánuður í að ég geti byrjað að æfa með liði og síðan eru kannski aðrar tvær til fjórar vikur eftir það í að komast í form. Endurhæfingin gengur vel og allt er eins og það á að vera," sagði Emil þann 18. febrúar.
Udinese er í 16. sæti ítölsku deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti.