Fotbolti.net
28.02.19 - 07:00
Hafliði Breiðfjörð

Erika Rún í Aftureldingu (Staðfest)

Erika Rún spilar með Aftureldingu í sumar.

Erika Rún spilar með Aftureldingu í sumar.

Canon

Mynd: Afturelding

Kvennaboltinn
Afturelding tilkynnti í gær að félagið hafi fengið liðsstyrk fyrir kvennalið félagsins en Erika Rún Heiðarsdóttir kom til þeirra frá Víkingi í Ólafsvík.

Þetta gerðist sama dag og félagið tilkynnti að samstarfi félagsins við Fram um sameiginlegt lið í Inkasso-deild kvenna væri lokið og í sumar muni liðið bera nafnið Afturelding en ekki Afturelding/Fram.
Erika er fædd árið 2001 og skrifar undir tveggja ára samning við Aftureldingu.

Hún spilar sem hafsent eða bakvörður en getur leyst stöður inná miðju og bindur félagið miklar vonir við hana í sumar sem og í framtíðinni.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Erika spilað 23 leiki á Íslandsmóti fyrir meistaraflokk Víkings Ólafsvíkur.

Erika hefur leikið með félaginu æfingaleiki að undanförnu og skoraði til að mynda sitt fyrsta mark gegn Grindavík síðastliðnahelgi. Þá mun hún fá treyjunúmer 14 hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.