Fotbolti.net
28.02.19 - 17:08
Elvar Geir Magnússon

Fótur Varane fékk að finna fyrir því

Fóturinn á Varane eftir leikinn í gær.

Fóturinn á Varane eftir leikinn í gær.

Canon

Mynd: Instagram

Raphael Varane, varnarmaður Real Madrid, átti vont kvöld í gær þegar Barcelona vann 3-0 sigur í bikar El Clasico,

Varane skoraði sjálfsmark í leiknum og eftir hann birti hann meðfylgjandi mynd af fæti sínum á Instagram.

Eftir lélega frammistöðu í leiknum er þó erfitt fyrir Varane að fá einhverja til að vorkenna sér.
Real Madrid er níu stigum frá Börsungum sem tróna á toppi La Liga en liðin mætast um komandi helgi.

Eftir leikinn í gær sagði Santiago Solari, þjálfari Real Madrid, að leikmenn sínir hefðu ekki brugðist.

„Fótbolti snýst um að nýta færin og þó leikmenn hafi lagt sig fram og spilað af krafti þá nýttu þeir ekki færin," sagði Solari.

„Þeir skoruðu úr sínu fyrsta skoti og annað markið var sjálfsmark. Það er ekki meira hægt að segja. Leikmenn lögðu sig fram og léku með hjartanu."
Fótur Varane fékk að finna fyrir því
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.