Fotbolti.net
28.02.19 - 21:26
Arnar Helgi Magnússon

Luba tekur skóna af hillunni og semur við Selfoss (Staðfest)

Tomasz Luba ásamt Jóni Steindóri Sveinssyni, formanni, Sævari Þór Gíslasyni, gjaldkera og Dean Martin, þjálfara meistaraflokks.

Tomasz Luba ásamt Jóni Steindóri Sveinssyni, formanni, Sævari Þór Gíslasyni, gjaldkera og Dean Martin, þjálfara meistaraflokks.

Canon

Mynd: UMFS

Selfyssingar halda áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í 2. deildinni en liðið hefur fengið til sín Tomasz Luba. Hann skrifar undir eins árs samning við Selfoss.
Luba lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2017 og sneri sér að þjálfun. Hann hefur leikið lengi á Íslandi en hann hefur spilað með Reyni S. og í átta ár með Víking Ó.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að komast í fótbolta aftur. Ég hætti í fótbolta til þess að setja fókusinn á þjálfunina og er að mennta mig í því en nú hlakka ég til að komast út á völlinn aftur," sagði Luba við undirskriftina.

„Hér er mjög gott ungt lið og aðstaðan er góð en síðasta ár var ekki gott hjá liðinu. Ég vildi koma hingað og hjálpa liðinu strax upp aftur."

„Mig langar líka að bæta því við að það er erfitt að kveðja Ólafsvík en ég er búinn að vera þar síðan 2010. Núna síðast var ég að þjálfa frábærar stelpur í 3. flokki. Mig langar að senda þeim skilaboð og segja: ekki gefast upp og verið duglegar að æfa. Og takk fyrir góðan tíma í Ólafsvík," sagði Luba að lokum.

Selfoss mætir KH í Lengjubikarnum annað kvöld. Leikið verður á gervigrasinu á JÁVERK-vellinum á Selfossi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.