Fotbolti.net
28.03.19 - 15:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Pato til Sao Paulo (Staðfest)

Pato er fyrrum leikmaður AC Milan.

Pato er fyrrum leikmaður AC Milan.

Canon

Mynd: Getty Images

Alexandre Pato hefur skrifað undir samning við Sao Paulo í heimalandi sínu til desember 2022.

Pato er sagður hafa borgað 2,5 milljónir evra úr eigin vasa til að fá sig lausan frá Tianjin Quanjian í Kína.

Hann mun þó ekki leika keppnisleik fyrir brasilíska liðið fyrr en í lok apríl.
Þessi 29 ára leikmaður skoraði 63 mörk í 150 leikjum fyrir AC Milan á sínum tíma.

Pato þekkir vel til hjá Sao Paulo en hann lék fyrir liðið 2014-2015.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.